ILLUQ (Permafrost - Pollution - Health)
Rannsóknarverkefnið ILLUQ (Sífreri – Mengun – Heilsa)
Þverfagleg rannsókn loftslagsbreytinga, sífrera, mengunar og heilsu, og aðlögunar í strandbyggðum á norðurslóðum sem styrkt er af Evrópusambandinu
Tímabil verkefnis: 1. janúar 2024, til 31. desember, 2027
Númer styrks: 101133587
ILLUQ er þverfaglegt rannsóknarverkefni grundvallað á virkri þátttöku nærsamfélagsins og samráði við hagaðila og rétthafa. Verkefnið nálgast bráðnun sífrera, mengun, “eina heilsu” (One Health) og velferð á norðurslóðum á heildstæðan hátt og rannsakar áhættu sem stafar af losun mengunarefna, hnignun innviða og breytingu á vistkerfum fyrir hagaðila. Rannsóknirnar fela í sér náið þverfaglegt samstarf vísindamanna frá mörgum alþjóðlegum samstarfstofnunum auk þess að notast við lýðvísindi (þátttöku almennings í vísindastarfi) þar sem heimafólk og hagaðilar taka virkan þátt í þekkingarsköpun og hönnun lausna.
ILLUQ verkefnið felur í sér víðtækar vettvangsmiðaðar rannnsóknir á loftslagsbreytingum og mengun og rýmkar svið rannsókna á áhrifum loftslagsbreytinga á mannlíf hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Dr. Joan Nymand Larsen, vísindamaður og sviðsstjóri hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og prófessor í hagfræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, leiðir vinnuna hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar.
ILLUQ rannsóknarteymið leiðir Alfred Wegener Institute í Þýskalandi (prófessor Hugues Lantuit).
Sífreri þekur um 22% af landsvæði norðurhvels og bráðnar nú á ógnarhraða sem er bein afleiðing loftslagbreytinga. Þegar sífrerinn þiðnar losnar mikið magn lífrænna efna og mengunarefna út í umhverfið. Mengunarefnin sem bundin hafa verið í freðnum jarðvegi, þ.á.m. þungmálmar, þrávirk lífræn efni og örverufræðilegir áhrifavaldar, eru hættuleg heilsu bæði dýra og manna. Þar að auki hefur bráðnun sífrera veruleg áhrif á innviði í byggðarlögum með víðtækum afleiðingum fyrir heilsu, efnahag og samfélag. Samt sem áður hafa hefðbundnar rannsóknir á félagslegum, efnislegum og heilsufarslegum afleiðingum sífreraþiðnunar yfirleitt beinst að einangruðum þáttum útaf fyrir sig í stað heildrænnar nálgunar. Þetta hefur leitt hefur til ófullnægjandi stefnumótunarvalkosta sem taka ekki mið af heildstæðu eðli ógnarinnar. ILLUQ rannsóknarverkefnið beinir sjónum sínum að hlekknum sem vantar í keðjuna á milli þeirra rannsókna sem framkvæmdar eru af vísindamönnum, verkfræðingum og ráðgjöfum í nærsamfélögum og lausna heimafólks, hagaðila og rétthafa, með áherslu á langtímaáhrif ákvörðunartöku.
Rannsakendur við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar:
Prófessor Joan Nymand Larsen
Dr. Jón Haukur Ingimundarson
Helga Guðrún Númadóttir, Sérfræðingur
Andrea Marta Knudsen, Sérfræðingur
Hlutverk vísindafólks hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar:
Ásamt samstarfsfélögum sínum munu Joan Nymand Larsen og Jón Haukur Ingimundarson vinna með heimafólki sem býr yfir ríkulegri staðbundinni þekkingu við að kanna með heildrænum hætti efnisleg, heilsufarsleg, félagsleg og innviðatengd áhrif sífreraþiðnunar á samfélög á norðurslóðum sem og aðlögunar- og mótvægisaðgerðir fortíðar, nútíðar og framtíðar. Vettvangsrannsóknir munu fara fram í Diskóflóa, Vestur-Grænlandi, á Svalbarða og á Mackenzie River Delta svæðinu í Kanada. Verkefnið felur í sér vinnu sem stuðlar að gerð verklags- og aðgerðaáætlana svo taka megi upplýstar ákvarðanir og finna árangursríkar leiðir fyrir samfélög að takast á við og aðlagast áhrifum og breytingum vegna sífreraþiðnunar.
Joan og Jón Haukur hafa áralanga reynslu af vettvangsrannsóknum á vestur- og suðurstönd Grænlands og við Diskóflóa hafa þau unnið náið með heimafólki við rannsóknir sem snúa að áhrifum loftslagsbreytinga, stefnuáætlunum um aðlögun og þróunarvísum norðurslóða. ILLUQ verkefnið mun gera þeim og þeirra samstarfsaðilum kleift að halda áfram og taka mikilvæg skref í þróun aðlögunaraðgerða og stefnumótun í nánu samstarfi við heimafólk.
ILLUQ rannsóknarverkefnið er styrkt af HORIZON Research and Innovation Action sjóði Evrópusambandsins.
Aðilar að rannsóknarteyminu: 16 samstarfsstofnanir frá 10 löndum: Austurríki, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi, Íslandi, Ítalíu, Hollandi, Noregi, Svíðþjóð.
Tengd rannsóknarverkefni: Nunataryuk (EU H2020) - permafrost thaw and changing Arctic coast: science for socio-economic adaptation https://nunataryuk.org/.
Fyrir frekari upplýsingar: Prófessor Joan Nymand Larsen at jnl@unak.is