Ein af aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum er stofnun Loftslagssjóðs sem er samkeppnissjóður sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra og hefur hann falið Rannís umsjón með honum. Alls verður um 500 milljónum króna varið til Loftslagssjóðs á fimm árum og þar af verða 140 milljónir króna til ráðstöfunar í fyrstu úthlutun.
Þann 28. nóvember var opnað fyrir umsóknir í Loftslagssjóð. Öllum er heimilt að sækja um í sjóðinn og er opið fyrir umsóknir til 30. janúar 2020.
Sjá nánar á vefsíðu Stjórnarráðsins.